Áætlun á Hornstrandir 2023 / Schedule 2023

Hér má sjá Hornstrandaáætlun 2023 / this is Hornstrandir ferry schedule 2023

Áætlun fyrir Hvalaskoðun og Vigur kemur fljótlega inn líka

Schedule for Whale whatching and Vigur will soon follow

Athugið að margar sérferðir eru einnig á dagskrá þar sem hægt er að bóka sig á tóma legginn, svo að ef áætlun hentar ekki, ekki hika við að hafa samband.

Starfsmannamál

Þad er afskaplega ánægjulegt ađ geta sagt frá því ađ allir á myndunum hér fyrir neđan munu vera í fullu starfi hjá okkur í sumar! Þađ er svo sannarlega ánægjulegt ađ geta bođiđ uppá svona reynslumiklar og góđar áhafnir.Ný andlit verđa líka međ okkur í sumar og verđa kynnt inn von bráđar. 😀

Sumar 2022 í fullri vinnslu

Sæl verið þið öll, nú er vinna við sumarið 2022 á fullu.

Áætlun fyrir sumarið mun koma hér inn von bráðar, en allar tímasetningar á ferðum eru þær sömu og hafa verið undanfarin ár, og einhverjar brottfarir bætast við.

Við erum spennt fyrir komandi sumri og við erum byrjuð að taka við bókunum, bæði í áætlanir og fyrir sérferðir.

Við erum einstaklega vel búin fyrir vinnuferðir og þungaflutninga, svo það er um að gera að hafa samband fyrr en seinna fyrir svoleiðis ferðir.

Eins og áður er best að hafa samband beint á Vesturferðir fyrir bókanir í áætlun.

Fyrir bókanir í sérferðir og vinnuferðir er best að hafa beint samband við Stíg , síminn er alltaf opin hjá Stíg, á Vesturferðum er opið virka daga milli 8 og 16 í vetur.

Stígur : 866-9650 eða sjoferdir@sjoferdir.is

Vesturferðir: 456-5111 eða info@westtours.is

Sumaráætlun 2021

Hér má sjá sumaráætlun 2021.

ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband á sjoferdir@sjoferdir.is eða í síma 866-9650. Einnig er hægt að hafa samband við vesturferðir info@westtours.is

Velkomin á nýja heimasíðu Sjóferða

Góðan dag, og verið velkomin á nýja heimasíðu Sjóferða.

Sjóferðir er nýstofnað fyrirtæki sem mun reka 2 fyrrum báta Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar.

Sjóferðir munu taka til starfa sumarið 2021 og mun áætlun byrja 1. júní.

Sjóferðir verða staðsettar á sama stað og Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar voru á og farþegar munu geta leitað til okkar í bryggjuhúsinu góða.

Stígur Berg Sophusson og Henný Þrastardóttir munu stýra fyrirtækinu, en Stígur hefur starfað hjá Hafstein og Kiddý allt frá árinu 2006, ásamt því að leysa af hjá öðrum ferðaþjónustuaðilum svo reynslan fer ekkert þó svo nýtt félag standi að rekstrinum.

Þessi heimasíða mun vera í vinnslu í vetur og við munum bæta inn upplýsingum reglulega, einnig er hægt að heimsækja síðu Vesturferða en þar má finna upplýsingar um siglingar og ferðir sem verða í boði hjá okkur.

Kærar kveðjur, við hlökkum til að sigla með ykkur sumarið 2021.