Afbókunarskilmálar
Ef afbóka þarf ferðina þá skal það gert skriflega í tölvupósti á netfangið: sjoferdir@sjoferdir.is
Berist afpöntun lengra en 14 dögum fyrir brottför:
-
Áskilja Sjóferðir sér að halda 10% af andvirði ferðarinnar.
-
Berist afpöntun með 14 til 2 daga fyrir brottför:
-
Áskilja Sjóferðir sér að halda 50% af andvirði ferðarinnar.
Berist afpöntun með skemmri en 2 daga fyrirvara:
-
Áskilja Sjóferðir sér að halda 100% fargjaldsins (engin endurgreiðsla)
Heimilt er að breyta dagsetningu ferðar ef breytingin er gerð með meira en mánaðar fyrirvara.
Hópar 20 manns eða fleiri:
Fyrir hópferðir er staðfestingargjald rukkað strax við bókun og er það 25% af heildarverði ferðar. Fargjald skal greitt að fullu ekki seinna en 30 dögum fyrir brottför.
Ef afbóka þarf lengri ferðina þá skal það gert skriflega í tölvupósti á netfangið: sjoferdir@sjoferdir.is
Sé afbókun gerð meira en 90 dögum fyrir brottför þá halda Sjóferðir 25% af kostnaði ferðarinnar (staðfestingargjaldið).
Verði afbókun 90 til 60 dögum fyrir brottför þá halda Sjóferðir 50% af kostnaði ferðarinnar.
Verði afbókun innan 60 daga fyrir brottför þá halda Sjóferðir 100% af kostnaði ferðarinnar (engin endurgreiðsla).
Almennt
-
Sjóferðir áskilja sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annars, svo sem og ef ekki fæst næg þátttaka.
-
Sjóferðum er heimilt að breyta dagsetningu ferðar ef breytingin er gerð með meira en mánaðar fyrirvara.
-
Afpöntunarskilmálar geta verið aðrir en að ofan greinir t.d. þegar um ráðstefnur og stærri hópa er að ræða.
-
Sjóferðir áskilja sér rétt á að breyta ferðum, lýsingu ferða og brottfarartíma án fyrirvara ef nauðsynlegt þykir.
-
Verði breytingar á flugi(innan og utanlands) eða bátsferðum á þeim tíma sem áætluð ferð hjá Sjóferðum er, þá ber ferðamaðurinn allan þann auka kostnað sem myndast, s.s. gisting, fæði og nýr ferðamáti, vegna þessa.
-
Farþegi í ferð Sjóferða er skuldbundinn að hlíta fyrirmælum fararstjóra og fara að lögum og reglum er gilda á flutningatækjum, áningarstöðum (sérstaklega á Hornstrandafriðlandinu), enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni.